Ávarp forstjóra
Árið 2025 var bæði viðburðaríkt og mikilvægt ár í starfsemi HS Veitna. Sem innviðafyrirtæki gegnum við lykilhlutverki í samfélaginu og það kom skýrt fram á árinu, ekki síst í ljósi áframhaldandi jarðhræringa á Reykjanesi og þeirra áskorana sem þær hafa haft í för með sér.
Við þær aðstæður hef ég enn og aftur orðið vitni að því hversu öflug liðsheild starfsfólk HS Veitna er. Fagmennska, samvinna og lausnamiðuð nálgun hafa skipt sköpum við að halda uppi öruggri þjónustu og bregðast hratt við þegar á reynir. Samstarf við viðbragðsaðila, stjórnvöld og aðra hagaðila hefur einnig verið lykilatriði og sýnir vel hverju má áorka þegar kraftar eru sameinaðir.
Á sama tíma og tekist var á við þessar áskoranir hélt hefðbundinn rekstur áfram að þróast með góðum árangri. Á þjónustusvæðum HS Veitna er áfram mikill vöxtur íbúa og atvinnulífs sem kallar á stöðuga uppbyggingu og styrkingu veitukerfa. Við höfum lagt ríka áherslu á að mæta þeim þörfum, bæði til skemmri og lengri tíma.
Á árinu var einnig stigið mikilvægt skref í þróun fyrirtækisins með nýju skipulagi sem tók gildi í upphafi árs. Með stofnun nýrra eininga, meðal annars á sviði tækni og nýsköpunar, viðskiptaþróunar og þjónustu og snjallra lausna, höfum við lagt góðan grunn fyrir áframhaldandi þróun, aukna samræmingu og enn betri þjónustu við viðskiptavini.
Stafræn þróun og gagnadrifin ákvarðanataka eru orðin mikilvægur hluti af starfseminni. Aukin notkun greiningartóla og hugbúnaðar hefur bætt yfirsýn yfir rekstur og styrkt grunninn fyrir markvissari ákvarðanir. Snjallmælavæðing, sem lauk á síðasta ári, hefur einnig skapað ný tækifæri til bættrar þjónustu.
Á árinu fögnuðum við jafnframt 50 ára afmæli Hitaveitu Suðurnesja. Í tengslum við það var unnið að því að taka saman sögu þeirra veitna sem HS Veitur byggja á í dag. Sú yfirferð minnir okkur á að rætur fyrirtækisins ná langt aftur í tímann og spanna í raun yfir 120 ára sögu uppbyggingar veitukerfa á Íslandi. Sú arfleifð er dýrmæt og undirstrikar mikilvægi þess að halda áfram að byggja upp öfluga og áreiðanlega innviði fyrir komandi kynslóðir.
Fjárhagsstaða HS Veitna er sterk og rekstur félagsins gekk vel á árinu. Áfram var fjárfest í uppbyggingu og endurnýjun innviða með það að markmiði að tryggja örugga og áreiðanlega þjónustu til framtíðar.
Við stöndum á traustum grunni, byggðum á reynslu, þekkingu og metnaði starfsfólks okkar. Ég er sannfærður um að sá grunnur muni halda áfram að styrkjast á komandi árum og gera okkur kleift að mæta þeim áskorunum og tækifærum sem fram undan eru.
Framtíð HS Veitna er björt.
Stiklað á stóru
Lykiltölur úr rekstri m.kr.
Rekstrartekjur
11.304,7
Rekstrargjöld
6.922,8
Rekstrarhagnaður-EBITDA
4.381,9
Hagnaður ársins
1.907,4
Rekstrarafkoma-EBIT
3.151,8
Fjármagnsliðir samtals
866,5
Hagnaður fyrir skatta
2.285,3
Tekjuskattur
377,9