Spurningar og svör ferskvatn
Hvers vegna er ferskvatnið hjá mér alltaf brúnt fyrst þegar ég skrúfa
frá?
Það stafar líklega af því að lagnir í húsinu er orðnar gamlar og lélegar og
trúlega er um galvanhúðaðar stállagnir að ræða. Ráðlagt er að endurnýja þær. Ef
inntak er einnig úr galvanhúðuðu stáli er ráðlagt að tala við okkur og óska
eftir endurnýjun á inntaki um leið og framkvæmdir hefjast við endurnýjun á
húskerfinu.
Hvers vegna er lélegur þrýstingur, vatnið rétt lekur þegar ég skrúfa
frá?
Það stafar af því að lagnir í húsinu er orðnar gamlar og lélegar og trúlega er
um galvanhúðaðar stállagnir að ræða. Ráðlagt er að endurnýja þær.
Hvers vegna er sírennsli í klósettkassanum hjá mér?
Þá þarf að skipta um stykki í klósettkassanaum sem stjórnar innrennslinu í hann.
Slíkt er hægt að fá í verslunum með pípulagningavörur. Sírennsli í klósettkassa
er leiðinlegt og er auk þess sóun á vatni. Þegar vatn rennur stöðugt er einhver
staðar dæla í gangi til að halda uppi vatnsstreyminu og það hefur í för með sér
sóun á raforku.
Gæði vatnsins, er fylgst með því?
Mörg lög og reglugerðir eru um vatnsveitur á Íslandi. Ferskvatn flokkast sem
matvæli og ber vatnsveitum m.a. að uppfylla matvælareglugerð og vera með
sérstakt innra eftirlit og á þeim forsendum fá þær starfsleifi. Eftirlit með
gæðum vatnsins er í höndum Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja,
hes.is fyrir Suðurnes og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands,
heilbrigdiseftirlitid.is fyrir Vestamanneyjar. Þeir sjá um að taka sýni
reglulega úr vatninu og upplýsingar varðandi það er hægt að nálgast hjá þeim.
Hvernig er sölufyrirkomulag ferskvatnsins?
Á Suðurnesjum er innheimt svokallað vatnsgjald sem er hluti af fasteignagjöldum,
þar sem HS Veitur hf sér um dreifingu ferskvatnsins þá skilar viðkomandi
sveitarfélag þessum tekjum til HS Veitna. Stórir notendur greiða samkvæmt
rennslismæli sem er lesið af mánaðarlega.
Í Vestmannaeyjum er allt ferskvatn selt samkvæmt vatnsmæli.
Ef einhverjar spurningar vakna þá vinsamlega hafið samband við HS Veitur hf í
síma
422 5200 eða sendið okkur fyrirspurn á
hs@hs.is