Language
Jafnvægisstilling Prenta  

Ef hitastýring á að vera nákvæm verður hitakerfið að vera jafnvægisstillt og stýrast af innihita. Jafnvægisstilling felur í sér að hámarksrennsli til hvers ofns er stillt. Þegar kerfi er rétt stillt er nýting á hitaveituvatni í hámarki. Rennsli til ofna er stillt með innri stillingu á ofnloka eða á stillité.

Á eldri kerfum getur þurft að endurnýja þennan búnað til að hægt sé að stilla kerfið með góðum árangri. Til að allir ofnar hitni jafnt þarf að stilla rennsli til hvers ofns því vatnið leitar alltaf eftir að fara auðveldustu leiðina og því fá "léttustu" ofnarnir mest vatn og hitna mest en fjarlægu ofnarnir fá minna og þar situr fólk í kulda. Hámarksrennsli til ofnanna er stillt þannig að þeir hiti nægilega við verstu veðurskilyrði.

Ath. að hávaði í ofnlokum stafar af óstilltu hitakerfi.

Sækja um aðgang
Kennitala:
Tölvupóstur:
Sími:

Umsókn um aðgang

Þegar þú hefur skilað inn kennitölu, netfangi og símanúmeri munum við senda til þín bréf í pósti með lykilorði en notendanafnið þitt er kennitalan þín.
Nýtt lykilorð
Kennitala:

Tapað lykilorð

Ef þú hefur glatað lykilorðinu þínu geturðu fengið nýtt sent í tölvupósti með því að slá inn kennitöluna þína og smella á Sækja um nýtt lykilorð.
Mín síða
Kennitala:
Lykilorð:

Innskráning á mína síðu

Hér getur þú skráð þig inn og skoðað yfirlit yfir notkun þína á rafmagni og vatni.