Góð ráð vegna notkunar heita vatnsins
Nokkur hollráð um umgengni
Láttu renna
úr heitavatnskrananum um stund til að vatnið nái fullum
hita. Heita vatnið kólnar ef ekkert rennsli er í rörum
og því lítið að marka hita þess fyrstu 2 til 4 mínútur
eftir að skrúfað hefur verið frá.
Aldrei láta renna
í bað eða heita potta án þess að fylgjast stöðugt með
hitastiginu. Bað með of heitu vatni er slysagildra.
Varast ber að láta heita vatnið renna fyrst og ætla sér
svo að kæla niður með köldu vatni heldur blanda það
strax.
Aðgát skal sýna við skúringar,
fötur
með heitu vatni eru í hættulegri hæð fyrir lítil börn og
til eru dæmi um börn sem hafa stigið í skúringarfötur
eða velt þeim yfir sig og brennst illa.
Ekki nota heitara vatn
í uppþvott en þú þolir með góðu móti. Það þarf
tiltölulega lágan hita til að leysa upp fitu.
Sérstök varkárni
er nauðsynleg ef lagnir og ofnar eru með því móti að
börn nái að grípa um þá, til dæmis til að reisa sig upp.
Látum fagmenn
yfirfara búnað og tæki ef minnsti grunur leikur á bilun.
Hafa verður í huga
Hafa verður í huga að vatnið sem er notað til hitunar
húsa á Íslandi er oftast afar heitt, miklu heitara en
til dæmis húshitunarvatn erlendis. Algengur hiti er 70
til 80 gráður. Erlendir ferðamenn átta sig iðulega ekki
á þessu atriði og hafa brennt sig illa. Þar sem sama
vatnið er einnig notað til baða og uppþvotta verður að
fara afar varlega í allri umgengni við vatnið. Látið
heitt vatn ALDREI komast í snertingu við húð án
þess að kanna hitastigið fyrst. Húð barna er viðkvæmari
en húð fullorðinna. Hið sama gildir um eldra fólk, því
með aldrinum þynnist húðin. Þessir hópar ásamt nokkrum
hópum fatlaðra einstaklinga eru í sérstökum áhættuhópi
vegna þess að viðbragðsflýtir þeirra er mun minni en hjá
heilbrigðum, fullorðnum einstaklingum.
Algengust eru slysin í baðkerum, sturtum, vöskum og
skúringarfötum með heitu vatni þar sem vangá og bilun
búnaðar eru algengustu orsakirnar. Mikilvægt er að temja
sér ákveðnar reglur í umgengni við heitt vatn og
eftirlit með viðhaldi tækja til að minnka líkur á slíkum
slysum.
Brunaslys
Brunaslys af völdum heita vatnsins geta haft víðtækari
afleiðingar en brunasárið og örið sem það skilur eftir
sig, einkum þegar um börn er að ræða. Sársauki vegna
húðbruna getur verið gríðarlega mikill.
Fórnarlömb alvarlegra brunaslysa ganga í gegnum
sársaukafullar aðgerðir, þar með talið húðágræðslu.
Húðágræðslu þarf að endurtaka hjá sumum börnum svo lengi
sem þau vaxa. Þessar aðgerðir eru sársaukafullar,
tímafrekar og kostnaðarsamar auk þess sem þær valda
miklu andlegu álagi á sjúkling og fjölskyldu. Hugum því
vel að hættunum og komum í veg fyrir slysin.
Fyrstu viðbrögð við bruna
Kælið þar til sviði er horfinn -
Notið 15 til 20° heitt vatn. Ekki láta renna beint á
sárið heldur hafið brennda svæðið á kafi í vatni eða
vefjið það með handklæði sem bleytt er með köldu vatni
reglulega.
Kælið aldrei skemur en í 10 mínútur.
Ef blöðrur eða sár myndast á húð, ef brunasár nær allan
hringinn á útlim eða ef bruni er í andliti, á hálsi,
liðamótum eða við kynfæri skal hringja tafarlaust á
lækni.