Nokkur hollráð um umgengni
Láttu renna úr heitavatnskrananum um stund til að vatnið nái fullum hita. Heita
vatnið kólnar ef ekkert rennsli er í rörum og því lítið að marka hita þess
fyrstu 2 til 4 mínútur eftir að skrúfað hefur verið frá. Aldrei láta renna í bað
eða heita potta án þess að fylgjast stöðugt með hitastiginu. Bað með of heitu
vatni er slysagildra. Varast ber að láta heita vatnið renna fyrst og ætla sér
svo að kæla niður með köldu vatni heldur blanda það strax. Aðgát skal sýna við
skúringar, fötur með heitu vatni eru í hættulegri hæð fyrir lítil börn og til
eru dæmi um börn sem hafa stigið í skúringarfötur eða velt þeim yfir sig og
brennst illa.
Ekki nota heitara vatn í uppþvott en þú þolir með góðu móti. Það þarf
tiltölulega lágan hita til að leysa upp fitu. Sérstök varkárni er nauðsynleg ef
lagnir og ofnar eru með því móti að börn nái að grípa um þá, til dæmis til að
reisa sig upp. Látum fagmenn yfirfara búnað og tæki ef minnsti grunur leikur á
bilun.
Hafa verður í huga
Hafa verður í huga að vatnið sem er notað til hitunar húsa á Íslandi er oftast
afar heitt, miklu heitara en til dæmis húshitunarvatn erlendis. Algengur hiti er
70 til 80 gráður. Erlendir ferðamenn átta sig iðulega ekki á þessu atriði og
hafa brennt sig illa. Þar sem sama vatnið er einnig notað til baða og uppþvotta
verður að fara afar varlega í allri umgengni við vatnið. Látið heitt vatn ALDREI
komast í snertingu við húð án þess að kanna hitastigið fyrst. Húð barna er
viðkvæmari en húð fullorðinna. Hið sama gildir um eldra fólk, því með aldrinum
þynnist húðin. Þessir hópar ásamt nokkrum hópum fatlaðra einstaklinga eru í
sérstökum áhættuhópi vegna þess að viðbragðsflýtir þeirra er mun minni en hjá
heilbrigðum, fullorðnum einstaklingum.
Algengust eru slysin í baðkerum, sturtum, vöskum og skúringarfötum með heitu
vatni þar sem vangá og bilun búnaðar eru algengustu orsakirnar. Mikilvægt er að
temja sér ákveðnar reglur í umgengni við heitt vatn og eftirlit með viðhaldi
tækja til að minnka líkur á slíkum slysum.
Brunaslys
Brunaslys af völdum heita vatnsins geta haft víðtækari afleiðingar en brunasárið
og örið sem það skilur eftir sig, einkum þegar um börn er að ræða. Sársauki
vegna húðbruna getur verið gríðarlega mikill.
Fórnarlömb alvarlegra brunaslysa ganga í gegnum sársaukafullar aðgerðir, þar
með talið húðágræðslu. Húðágræðslu þarf að endurtaka hjá sumum börnum svo lengi
sem þau vaxa. Þessar aðgerðir eru sársaukafullar, tímafrekar og kostnaðarsamar
auk þess sem þær valda miklu andlegu álagi á sjúkling og fjölskyldu. Hugum því
vel að hættunum og komum í veg fyrir slysin.
Fyrstu viðbrögð við bruna
Kælið þar til sviði er horfinn - Notið 15 til 20° heitt vatn. Ekki láta renna
beint á sárið heldur hafið brennda svæðið á kafi í vatni eða vefjið það með
handklæði sem bleytt er með köldu vatni reglulega.
Kælið aldrei skemur en í 10 mínútur. Ef blöðrur eða sár myndast á húð, ef
brunasár nær allan hringinn á útlim eða ef bruni er í andliti, á hálsi,
liðamótum eða við kynfæri skal hringja tafarlaust á lækni.