|
|
|
Góð ráð ferskvatnsveita
Efnisval í lagnir
HS Veitur hf leggur allar lagnir úr plasti. Í húskerfin geta
húseigendur valið á milli nokkra lagnategunda. Bent er á vef
langavals,
www.lagnaval.is
til að sjá hvað hentar best í lagnir eftir viðkomandi svæðum.
Galvanhúðuð rör á alls ekki að nota í kalt vatn.
Drekkið vatnið beint úr krananum
Að drekka átappað vatn úr flöskum er siðlaust og kominn tími til
að setja af stað herferð til að draga úr neyslunni að mati
umhverfisráðherra Bretlands. Framleiðsla á einum lítra af vatni
á flösku leiðir til að minnsta kosti 600 sinnum meiri losunar á
koldíoxíði en sama magn af vatni úr krana. Talið er að neysla
einnar vatnsflösku leiði til jafn mikillar mengunar og stafar af
því að aka meðalbifreið tveggja kílómetra vegalengd. Sumar
gerðir drykkjarvatns sem seldar eru í Bretlandi eru framleiddar
í mörg þúsund kílómetra fjarlægð, en samkvæmt sænskri rannsókn
eru umhverfisáhrif af neyslu vatns úr flöskum að minnsta kosti
90 til 1000 sinnum meiri en vatns úr krana.
|
|