Forsíða Þjónusta Framkvæmdaaðilar Dreifing HS Veitur hf Mín síða
 
 
Þjónustubeiðnir
Notendaskipti
Álestrarbeiðni
Álestrarskil
Ósk um ýmsa þjónustu
Ósk um símtal
Rafrænn reikningur
Ósk um boðgreiðslu
Ósk um beingreiðslu
Góð ráð
Rafmagn
Lýsing
Hitaveita
Grindin
Vatnsveita
Spurningar og svör
Rafmagn
Hitaveita
Vatnsveita
Reiknivélar
Heimlagnargjöld
Orkureiknir
Gjaldskrár
Gjaldskrá
Annað
Ábendingar
 

Hitaveitugrindurnar  

Eldri og nýrri gerð

 

Árið 2006 var byrjað að nota nýja gerð hemla í sölukerfi HS Veitna hf. Er það tilkomið vegna þess að framleiðandi eldri lokanna (hemlana) er að hætta með þá í framleiðslu. Nýja gerðin er þó aðeins sett upp í nýjum húsum í dag. 

Gamla gerðin hemlar vatn ásamt tveimur koparstykkjum (blendi). Fyrra blendið er fyrir neysluvatn og það síðara er fyrir hitakerfið.

Með nýju lokunum (hemlunum) er ekki þörf fyrir blendi, heldur hemlar fyrri hemill í grindinni neysluvatn og sá síðari inn á hitakerfið

 

 

 

HS Veitur hf á búnað í grind sem merkt er frá 1 til 5 og þjónustar hann. Auk þess á HS Veitur hf inntakið sjálft og heimæð að húsinu. Annar búnaður er í eigu húseiganda.

 

Eldri gerðin:

1. Inntaksloki hitaveitu
2. Sía
3. Hemill

4. Mælité
5. Höfuðloki hitakerfis
6. Þrýstimælir
7. Þrýstijafnari
8. Hita- og þrýstimælir
9. Einstreymisloki
10. Höfuðloki heitt neysluvatn
12. Þjónustuloki
13. Öryggisloki
14. Þjónustuloki
15. Hita- og þrýstimælir
16. Sía og tæming
17. Mótstöðuloki
21. Frárennsli

Nýja gerðin:

1. Sía
2. Neysluvatnshemill tegund Danfoss AVQ
3. Mælité fyrir neysluvatn

4. Höfuðloki neysluvatn
5. Hitakerfishemill tegund Danfoss AVQ
6. Mælité fyrir hitakerfi

7. Höfuðloki hitakerfis

 

  

 

  •  

     

  •