Hemla og mæligrindur
Árið 2006 var byrjað að nota nýja gerð hemlagrinda í sölukerfi HS Veitna hf. Er
það tilkomið vegna þess að framleiðandi eldri lokanna (hemlana) er að hætta með
þá í framleiðslu. Nýja gerðin er þó aðeins sett upp í nýjum húsum í dag. Gamla
gerðin hemlar vatn ásamt tveimur koparstykkjum (blendi). Fyrra blendið er fyrir
neysluvatn og það síðara er fyrir hitakerfið.
Með nýju lokunum (hemlunum) er ekki þörf fyrir blendi, heldur hemlar fyrri
hemill í grindinni neysluvatn og sá síðari inn á hitakerfið HS Veitur hf á búnað
í grind sem merkt er frá 1 til 4 og þjónustar hann. Auk þess á HS Veitur hf
inntakið sjálft og heimæð að húsinu. Annar búnaður er í eigu húseiganda.
Eldri gerð hemlagrindar:
- Inntaksloki hitaveitu
- Sía
- Hemill
- Mæli-té
- Höfuðloki hitakerfis
- Þrýstimælir
- Þrýstijafnari
- Hita- og þrýstimælir
- Einstreymisloki
- Höfuðloki heitt neysluvatn
- Þjónustuloki
- Öryggisloki
- Þjónustuloki
- Hita- og þrýstimælir
- Sía og tæming
- Mótstöðuloki
- Frárennsli
Sjá nánari skýringu á fyrstu mynd til hægri.
Nýrri gerð hemlagrindar:
- Sía
- Neysluvatnshemill tegund Danfoss AVQ
- Mælité fyrir neysluvatn
- Höfuðloki neysluvatn
- Hitakerfishemill tegund Danfoss AVQ
- Mælité fyrir hitakerfi
- Höfuðloki hitakerfis
Sjá nánari skýringu á annari mynd til hægri.
Mælagrind:
- Inntaksloki hitaveitu
- Sía
- Rennslismælir, sölumælir HS Veitna hf
- Höfuðloki hitakerfis
- Höfuðloki heitt neysluv.
- Þrýstimælir
- Þrýstijafnari
- Hita- og þrýstimælir
- Einstreymisloki
- Stilliloki (magnstillir)*
- Öryggisloki
- Stilli-té (loki)
- Ofnloki bakrennsli
- Þjónustuloki
- Hita- og þrýstimælir
- Sía og tæming
- Mótstöðuloki
- Frárennsli
Sjá nánari skýringu á þriðju mynd til hægri.
* Stilliloki er verkfæri til að hámarka það magn sem getur farið inn á
hitakerfi húsa, bremsar það niður. Stærð lokans skiptir máli. Ráðlagt er að hafa
samband við fagaðila, t.d. pípara varðandi uppsetningu og stillingu lokans. Loki
sem sýndur er á mynd er aðeins einn af nokkrum möguleikum til að hámarka það
rennsli sem fer í gegnum hitakerfið.