|
Góð ráð rafmagn
Skipting raforkunotkunar
Fjöldi, stærð og notkun heimilistækja og þar með rafmagnsnotkun
heimilisins er að verulegu leyti háð fjölda og aldri
einstaklinga á heimilinu. Til einföldunar er hægt að skipta
heimilum í þrjá flokka eftir fjölda íbúa:Lítil
heimili:
tveir til þrír einstaklingar, engin smábörn, rafmagnsnotkun
2.200-3.000 kWh á ári (6 til 8 kWh á dag)Meðal
heimili:
fjórir einstaklingar, smábörn, algengustu heimilistæki,
rafmagnsnotkun 3.600 til 4.200 kWh á ári (10 til 12 kWh á dag)Stór
heimili:
fjórir til sex einstaklingar, flest heimilistæki, rafmagnsnotkun
4.800 til 5.500 kWh á ári (13 til 15 kWh á dag)Skipting
rafmagnsnotkunar á heimilum er mjög breytileg, en dæmigerð
skipting notkunar meðalfjölskyldu er:
Þvottatæki - 28%
Lýsing - 17%
Kælitæki - 19%
Eldunartæki - 24%
Önnur notkun - 12%
Hvað
get ég gert til að spara rafmagn?
Notkun á rafmagni eykst sífellt á meðalheimili og kemur þar
margt til. Aukin tölvunotkun og innleiðing nýrra heimilistækja
sem nota rafmagn. Þú getur auðvitað sparað með því að nota færri
raftæki og nota þau minna, en að auki er ýmislegt hægt að gera
til frekari sparnaðar. Oft nota ný heimilistæki talsvert meira
rafmagn en gert var ráð fyrir, dæmi eru vatnsrúm og stórir
tölvuskjáir.
Notið rétta ljósgjafa-Rétt
val á ljósgjafa er mikilvægt. Notið ekki stærri perur en þið
þurfið og gætið að því að lampabúnaðurinn dragi ekki um of úr
birtu. Notið flúorpípur þar sem þess er kostur.
Notið ljósa liti í umhverfið-Umhverfið
ræður miklu um hve mikla lýsingu þarf. Ljósir litir á lofti,
veggjum, gluggatjöldum og gólfum geta sparað mikla lýsingu.
Haldið lömpum hreinum.
Slökkvið á eftir ykkur-Munið
að slökkva á eftir ykkur. Oft loga ljós að óþörfu þar sem engin
hefst við. Slíkt getur einnig skapað eldhættu.
Uppþvottavélin-Fyllið
uppþvottavélina. Hún notar jafnmikla orku hvort sem mikið eða
lítið er þvegið í einu. Notið sparnaðarhnappinn (E) eins oft og
kostur er. Pottar og önnur áhöld sem taka mikið rými, er ekki
hagkvæmt að þvo í uppþvottavélinni. Þvoið upp sem fyrst svo að
matarleifar nái ekki að þorna. Þá nægir styttra þvottakerfi og
lægra hitastig.
Þvottavélin-Fyllið
vélina af þvotti. Það kostar álíka mikið að þvo lítinn og mikinn
þvott. Hafið ekki of hátt hitastig. Vélin notar 30% minni orku,
ef hitinn er lækkaður um þriðjung. Sleppið forþvotti, ef
þvotturinn er lítið óhreinn. Það sparar 20% orku. Skolun með
köldu vatni fyrir þvott getur sparað orku. Hvort sem um er að
ræða þvottavél fyrir klæðnað eða leirtau, er hægt að sleppa
forþvotti fyrir vikið.
Þurrkarinn-Vindið
þvottinn sem best áður en hann er settur í þurrkarann. Hreinsið
lósíuna eftir hverja notkun. Setjið hæfilegt magn af þvotti í
þurrkarann, hvorki of mikið né of lítið. Hvort tveggja veldur
meiri orkunotkun en ef þurrkað er hæfilegt magn í einu. Notið
sparnaðarstillingu þegar henni verður við komið.
Vatnsrúmið-Hæfilegt
hiti á vatnsrúminu er 27°C. Orkunotkunin eykst um 5% fyrir hvert
stig sem hitinn er hærri. Búið um vatnsrúmið. Mikið hitatap
verður ef rúmið er látið standa óumbúið í svölu herbergi.
Slökkvið ekki á vatnsrúminu tímabundið til að spara rafmagn. Það
jafngildir þriggja til fjögurra daga notkun að hita upp vatnsrúm
frá 18 til 27°C. Loftræsið svefnherbergið stuttan tíma í einu.
Standi herbergisglugginn opinn getur þurft stöðuga
rafmagnsnotkun til að halda réttu hitastigi á vatnsrúminu.
Örbylgjuofninn-Tími
og orka sparast þegar matreitt er í örbylgjuofni. Það tekur sjö
mínútur (0,14 kWh) að matreiða 250g af kartöflum í örbylgjuofni,
en 25 mínútur (0,22 kWh) á eldavél. Notið eldunaráhöld sem henta
örbylgjuofninum. Sjóðið eða hitið matinn í lokuðum ílátum,
þannig helst hitinn betur á matnum og orka sparast. Með því að
nota lítið vatn þarf styttri suðutíma. Oft er hægt að sleppa
vatninu alveg þegar matreitt er í örbylgjuofni.
Eldavélin-Gætið
þess að potturinn sé hæfilega stór á helluna. T.d. fer 20%
orkunnar til spillis ef potturinn er 2 cm minni í þvermál en
hellan. Ósléttur botn á potti eða pönnu getur valdið 40% meiri
rafmagnsnotkun. Notið þétt lok á pottinn og takið það ekki af
meðan soðið er. Ef lokið er ekki á pottinum þarf tvöfalt meiri
orku en ella. Það þarf tvisvar til þrisvar sinnum meiri orku að
glóðarsteikja í ofninum en að steikja á hefðbundinn hátt.
Frystikistan-Æskilegt
er að frystikistan sé á köldum stað. Hún notar 5% minna rafmagn
fyrir hvert stig sem umhverfishitinn er lægri. Hæfilegt hitastig
í kistunni er um - 18°C. Rafmagnsnotkunin eykst um 5% fyrir
hvert stig sem hitinn er lægri. Gætið þess að kæliristin á
bakhlið kistunnar sé hrein og að nóg loft geti leikið um hana.
Innilokuð og rykug kælirist getur valdið 30% meiri
rafmagnsnotkun. Látið frystikistuna ekki ganga tóma. Tóm kista
notar jafnmikið rafmagn og full.
Ísskápurinn-Hæfilegt
hitastig í kæliskápnum er 4 til 5°C. Rafmagnsnotkun eykst um 4%
fyrir hvert stig sem hitinn er lækkaður. Gætið þess að
loftræsting sé nægjanleg bak við kæliskápinn. Léleg loftræsting
getur valdið 5-10% meiri rafmagnsnotkun. Kæliskápa sem ekki eru
með sjálfvirka afhrímingu þarf að afþíða reglulega.Kaffivélin-Það
sparast um 30% með því að laga kaffið í kaffivél í stað þess að
nota hraðsuðuketil og hella uppá á gamla mátann. Notið hitakönnu
til að halda kaffinu heitu, en ekki hitaplötu kaffivélarinnar.
Gleymd notkun-Mörg
heimilistæki nota rafmagn jafnvel þó að þau séu ekki í gangi.
Þetta eru tæki sem búin eru fjarstýringu og eru tilbúin til að
hlýða skipun frá henni til dæmis sjónvörp, hljómtæki,
myndbandstæki og fleiri. Öll þessi tæki auka orkunotkunina. Þó
svo að þau taki lítið afl er oftast kveikt á þeim allan
sólarhringinn allan ársins hring.
Sjónvörp-Í
sjónvarpi getur aflið, sem tækið notar þó slökkt sé á því með
fjarstýringu, verið frá 3 til 18 Wött sem þýðir að orkunotkun
þessa tækis verður milli 25 og 160 kWh á ári ef tækið er í
sambandi allt árið. Þessa eyðslu má spara með því að slökkva
alveg á sjónvarpinu auk þess sem það minnkar hættu á íkveikju.
Myndbandstæki-Myndbandstæki
sem stjórnað er með fjarstýringu notar um 100 kWh á ári. Það að
slökkva alveg á myndbandstækinu hefur bæði kosti og galla. Ef
slökkt er alveg á tækinu sparast þessar 100 kWh en á móti þarf
oft að endurstilla klukku og dagsetningu þegar kveikt er næst.
Önnur tæki-Spennar
fyrir amerísk 110 volta heimilistæki nota orku þó svo að þau séu
ekki í gangi. Þá er rétt að átta sig á því að ýmis tæki gætu
verið tengd án þess að við munum eftir því t.d.
loftnetsmagnarar, rafmagnsklukkur og klukkur í ýmsum tækjum eins
og til dæmis í örbylgjuofnum, eldavélum og útvarpsklukkum.
Nokkur hollráð um rafmagnsnotkun
Brunahætta-getur
stafað af ógætilegri meðferð rafmagnstækja.
Vartappar-eru
enn í eldri húsum. Gætið þess að eiga eldri tappa: 10 amper
fyrir ljós, 16-25 amper fyrir stærri tæki og 35 amper fyrir
kvíslar.
Gamlar raflagnir-eru
víða undir meira álagi en þær eru gerðar fyrir, margar úr sér
gengnar. Látið fagmann kanna ástand raflagnarinnar og bæta um ef
þörf krefur. Gangið tryggilega frá öllum rafmagnstækjum áður en
þið farið að heiman.
Slysahætta-getur
stafað af lélegum tækjum og trosnuðum framlengingarsnúrum, sem
geta verið sérstaklega hættulegar börnum. Varist því ofnotkun á
lausum snúrum. Gætið þess að þær verði ekki fyrir hnjaski og
liggi ekki þar sem börn ná til.
Lekastraumsrofinn-leysir
út við bilun í lögn eða tæki. Reynið að finna bilunina með því
að rjúfa fyrst allar greinar og taka öll tæki úr sambandi.
Setjið síðan rofann inn, þá greinarnar hverja af annarri og að
lokum hvert tæki í samband aftur. Hafið samband við rafverktaka
ef þörf er á viðgerð.
Hvað þarf að varast í umgengni við rafmagn?
Almennt:
-
Skiljið ekki eftir hluti sem börn eða óvitar geta stungið í
innstungur á veggjum.
-
Aldrei má gera sjálf(ur) við lagnir eða töflur, látið
fagmenn um slíkt.
-
Byrgið ekki ljós með gluggatjöldum eða öðru slíku.
-
Setjið ekki stærri perur í lampa en þeir eru gerðir fyrir.
-
Ofhitun getur valdið íkveikju.
-
Góð útilýsing er ódýr þjófavörn.
-
Takið ljósaseríur úr samband meðan skipt er um perur.
-
Öll raftæki eiga að vera CE merkt.
-
Takið allar ljósaskeytingar innanhúss úr sambandi meðan
heimilisfólkið er að heiman eða sofandi.
Hitapúðar og teppi:
-
Lesið leiðbeiningar gaumgæfilega áður en sett er í samband.
Sofið ekki með hitateppi eða púða sem kveikt er á.
-
Gætið þess að ekki komi brot í púðana eða teppin og hnoðið
þau ekki saman.
-
Raki og oddhvassir hlutir fara illa með púðana og teppin.
-
Veljið gerðir með rofa sem slekkur eftir ákveðinn tíma.
-
Notið aldrei hitapúða eða hitateppi fyrir börn eða
hjálparvana og ekki fyrir þá sem hafa skert hitaskyn.
-
Úreldið teppi og púða sem orðin eru eldir en 10 ára.
-
Skiljið ekki við rafhitapúða eða rafhitateppi í sambandi.
|