Language
Sýningin Orkuverið Jörð Prenta  

Gagnvirk sýning í Reykjanesvirkjun

Á árinu 2006 skrifaði Hitaveita Suðurnesja hf. undir samninga við List og saga ehf. og Janvs international vegna hönnunar og smíði á sýningunni Orkuverið Jörð eða Powerplant Earth. Sýningin hefur nú verið sett upp í stöðvarhúsi Reykjanesvirkjunar. Hönnun og hugmyndafræði sýningarinnar gengur út frá stóra hvelli og upphafi sólkerfisins allt aftur til okkar tíma. Farið er meðal annars í gegnum uppfinningar sem breytt hafa lífi okkar til þess vegar sem það er í dag en það ætti að vera okkur öllum ljóst hversu mikilvægur þáttur orkan er í lífi okkar. Fjallað verður um mismunandi orkunýtingu á jörðinni og hvaða möguleika við höfum á orkunýtingu bæði hér heima á Íslandi sem og annars staðar í heiminum. Nokkur sýnishorn eru á staðnum en segja má að jarðvarmavirkjunin sjálf sé eitt það stærsta. Sýningin er að nokkrum hluta gagnvirk og geta gestir því tekið virkan þátt í henni.

Nánar um efnistök Orkuversins Jörð

Upphaflega er Orkuverið Jörð hugarfóstur aðstoðarforstjóra Hitaveitu Suðurnesja hf, Alberts Albertssonar. Sýningin hefur síðan verið hönnuð af Janvs International í London og Ara Trausta Guðmundssyni sem sá um að semja texta sýningarinnar. Á spjöldum og gagnvirkum skjám er að finna ógrynni upplýsinga um orku, plánetur og himingeiminn. Nokkur gagnvirk tæki er að finna á sýningunni þar á meðal jarðskjálftahermir þar sem sýningargestir geta upplifað raunverulega jarðskjálfta á mismunandi richterskala.

Plánetu ratleikur um Reykjanesið

Fyrir utan stöðvarhús virkjunarinnar, hálfgrafin í hrauninu er sólin staðsett en hinar plánetur sólkerfisins eru staðsettar víðsvegar um Reykjanesskagann í hlutfallslega réttri fjarlægð frá sólinni við Reykjanesvirkjun og hlutfallslega réttri stærð við hana alla leið til Reykjanesbæjar þar sem síðasta og minnsta plánetan er. Þar af leiðandi er upplagt að fara í skemmtilegan ratleik um skagann í tengslum við plánetur sýningarinnar.

Opið er frá 1 maí til 15. september frá klukkan 12.00 til 16.00 alla daga vikunnar.

Einnig verður tekið á móti hópum utan hefðbundins opnunartíma samkvæmt samkomulagi.

Vinsamlega hafið samband í síma 436 1000

Veist þú

  • Hversu mikil orka fer í að hita vatn í tebolla?
  • Hversu margar pláneturnar eru í sólkerfinu okkar?
  • Hvað þær heita og hvernig ætli sé að vera þar?
  • Hversu mikla orku þurftir þú til að ferðast til orkuversins?

Allt eru þetta spurningar sem þú færð svarað á sýningunni og mörgum fleiri sem þér datt ekki einu sinni í hug að spyrja.

Bæklingur um Orkuverið Jörð

Sækja um aðgang
Kennitala:
Tölvupóstur:
Sími:

Umsókn um aðgang

Þegar þú hefur skilað inn kennitölu, netfangi og símanúmeri munum við senda til þín bréf í pósti með lykilorði en notendanafnið þitt er kennitalan þín.
Nýtt lykilorð
Kennitala:

Tapað lykilorð

Ef þú hefur glatað lykilorðinu þínu geturðu fengið nýtt sent í tölvupósti með því að slá inn kennitöluna þína og smella á Sækja um nýtt lykilorð.
Mín síða
Kennitala:
Lykilorð:

Innskráning á mína síðu

Hér getur þú skráð þig inn og skoðað yfirlit yfir notkun þína á rafmagni og vatni.