|
|
|
Völundur og Jarðlind
Fyrirtækið kynnir Völund og Jarðlind sem eru nýir starfskraftar.
Þeirra starf hjá fyrirtækinu verður að kynna fyrir yngri
kynslóðinni starfssemi fyrirtækisins en starf þeirra er í
sífelldri þróun svo búast má við mun meiri fróðleik inn á
vefsíður þeirra hjá okkur á næstu mánuðum.
Völundur og Jarðlind eru jarðálfar sem komust upp á yfirborðið
úti á Reykjanesi þar sem boraðar hafa verið nokkrar holur í
tengslum við Reykjanesvirkjun. Þau settust að í virkjuninni og
fyrir unga sem aldna er fróðlegt að heimsækja virkjunina og
skoða sýninguna Orkuverið Jörð.
Á síðum Völundar og Jarðlindar er hægt að skoða fróðlegt efni um
orku og rafmagn ásamt því að hægt er að prenta út nokkrar
litamyndir og þrautir en lausnir þeirra tengjast rekstri
fyrirtækjanna á einn eða annan hátt.
Völundur og Jarðlind, velkomin til starfa !

|
|