Raflost
Þú getur aldrei vitað hvort eða hvenær bein snerting við rafmagnið verður banvæn.
En þú getur verið viss um að hún veldur alltaf skaða.
Raflost getur valdið vöðvakrampa, slappleika, grunnri öndun, auknum hjartslætti, slæmum brunasárum, meðvitundarleysi eða dauða. Við raflost verður leiðin um líkamann, þar sem að rafspennan fer um, mjög heit. Bruni verður á öllu því svæði sem spennan fer um, þar með talið þar sem að hún fer inn og út um líkamann. Það eru ekki einungis háspennulínur sem að geta drepið eða slasað alvarlega við snertingu. Þú gætir líka látið lífið við raflost frá heimilistæki eða innstungu á heimilinu þínu.
Þess vegna skal alltaf umgangast rafmagn með varúð!