Language
Vestmannaeyjar Prenta  

Ný 8 tommu sver neðansjávarvatnsleiðsla milli lands og Eyja
Sumarið 2006 hóf Hitaveita Suðurnesja undirbúning á kaupum og lagningu 8“ neðansjávarvatnsleiðslu milli lands og Eyja. Samið var við Fjarhitun hf. um verkfræði-
þjónustu og Sjómælingar Íslands um kort af sjávarbotninum. Í apríl 2007 var gengið til samninga við danska fyrirtækið NKT um kaup á leiðslunni og danska fyrirtækið JD Contractor ApS um lagningu hennar milli lands og Eyja.

Leiðslan
Leiðslan er 12.566 metrar að lengd. Engar samsetningar eru á leiðslunni. Framleiðslan fer þannig fram, að fyrst er innsta lagið sem er plast HDPE plast framleitt. Þegar plastið kemur úr framleiðsluvélinni er leiðslan leidd á keflum og rúllum út úr verksmiðjuhúsinu á „turn table“ sem er risastórt kefli sem snýst og hægt að hringa alla 12.566 metrana á keflið. Leiðslan er síðan leidd í annað verksmiðjuhús þar sem hún er vafinn með stállengjum „pressure armour“ svo leiðslan þoli mikinn innri þrýsting. Leiðslan er síðan vafin með polyester efni og eftir það vafinn aftur með stállengjum „ tensile armour“ til að gera leiðsluna sterkari vegna áslægra krafta sem myndast vegna innri þrýstings, til að þyngja leiðsluna og togkrafta sem myndast við niðurlagningu. Eftir það er leiðslan vafin aftur með polyester efni og að lokum klædd með gulu MDPE plastefni.

Á enda leiðslunnar eru settur sérstakur endabúnaður. Endabúnaðurinn er gerður til að þola þá krafta sem verða þegar leiðslan er toguð upp á land og lokar einnig endunum til að koma í veg fyrir tæringu. Leiðslan er um 100 kg að þyngd á hvern metra, full af vatni.

Útlagning
Í júlí 2008 verður leiðslan lögð milli lands og Eyja. Útlagninga fyrirtækið JD Contractor ApS mun sjá um útlagninguna með skipinu Henry P Lading, sama skip sá um útlagninguna 1968 og 1971. Henry P. Lading er 1/9 hluti úr gömlu olíuskipi og þarf þrjá dráttabáta til að draga og stýra skipinu.

12.566 metra löng leiðslan er í einu lagi á kefli, á skipinu. Farið verður með skipið eins nálægt Landeyjasandi eins og kostur er, leiðslan fleytt á loftbelgjum að sandinum, þar sem öflugar vinnuvélar draga síðan leiðsluna um 300 metra að tengipunkti við núverandi aðveituæð.

Lögð hefur verið mikil vinna við að velja lagnaleið þannig að sem best fari um leiðsluna á sjávarbotni. Hafa mælingar og kort frá Sjómælingum Íslands reynst vel í þeirri vinnu.

Hér fyrir neðan er mynd sem lituð er eftir sjávardýpi
Gula línan á kortinu er lagnaleiðin sem notuð verður í sumar. Búið er að gera hnitakort af lagnaleiðinni sem Henry P. Lading mun leggja leiðsluna eftir. Valin var sem sléttastur botn og reynt að forðast hraun, hraundranga og stórar misfellur. Litirnir á kortinu sýna einnig dýpt. Svart blái liturinn sýnir 100 metra dýpi eða meira. Dökk blái liturinn sýnir dýpi sem er 70 til 80 metrar, ljósblái liturinn 60 til 70 metra, dökk græni liturinn 50 til 60 metra, ljós græni liturinn 40 til 50 metra og brúni liturinn 30 til 40 metra dýpi.

Eftir útlagningu verður leiðslan þrýstingsprófuð í einn sólahring með 87,5 bar þrýstingi og síðan afhent Hitaveitu Suðurnesja til notkunar. Eftir það verður búið að tryggja að nægt neysluvatn renni til Eyja næstu 40 árin.

Áætlaður kostnaður Krónur
NKT leiðsla 820.000.000
Útlagning 150.000.000
Þverun og ferging 75.000.000
Lagnavinna í landi 45.000.000
Hönnun og eftirlit 15.000.000
Samtals áætl. kostnaður 1.105.000.000

Sækja um aðgang
Kennitala:
Tölvupóstur:
Sími:

Umsókn um aðgang

Þegar þú hefur skilað inn kennitölu, netfangi og símanúmeri munum við senda til þín bréf í pósti með lykilorði en notendanafnið þitt er kennitalan þín.
Nýtt lykilorð
Kennitala:

Tapað lykilorð

Ef þú hefur glatað lykilorðinu þínu geturðu fengið nýtt sent í tölvupósti með því að slá inn kennitöluna þína og smella á Sækja um nýtt lykilorð.
Mín síða
Kennitala:
Lykilorð:

Innskráning á mína síðu

Hér getur þú skráð þig inn og skoðað yfirlit yfir notkun þína á rafmagni og vatni.