|
|
|
Suðurnes
Dreifikerfi HS Veitna nær til allra sveitarfélaga á
svæðinu, auk Keflavíkurflugvallar. HS Veitur annast rafmagnsdreifikerfi
og hitaveitudreifikerfi á öllum Suðurnesjum. Einnig annast HS
Veitur
dreifingu á ferskvatni í Reykjanesbæ, Garði og
Keflavíkurflugvelli.
Rafmagnsdreifing, HS Veitur dreifir raforku svo til eingöngu með
jarðköplum, þannig að lítið ber á rafdreifikerfinu ef frá eru
taldar dreifistöðvar og götuskápar. Þessi uppbygging lágmarkar
að áhrif af veðri á dreifinguna og veitir hæsta
afhendingaröryggið. HS Veitur dreifir rafmagni á nokkrum spennuþrepum
eða 33kV, 12kV og 400 voltum.
Hitaveitudreifing, Aðveitulagnir frá Svartsengi, svo og safnæðar
í Svartsengi, eru lagðar ofanjarðar og einangraðar með steinull
og síðan varðar með álþynnum. Allar aðrar pípur eru neðanjarðar
frá bæjarmörkum þéttbýliskjarna og eru þar af leiðandi ekki til
trafala eða lýta.
Hitastig vatnsins frá orkuveri er með tvennum hætti. Vatn sem
fer til Grindavíkur fer út um 83°C og er þá gert ráð fyrir að
það sé um 80°C við bæjarmörk. Það vatn sem fer til dælustöðvar á
Fitjum fer út frá orkuverum um 105°C til 120°C síðan er það
blandað með bakrennslisvatni frá flugvellinum í dælustöð að
Fitjum og sent út til notenda um 83°C. Almennt er reiknað með að
notendur nýti varmann úr vatninu niður í 35°C til 40°C en síðan
rennur vatnið til sjávar um holræsakerfi sveitarfélaganna.
Dreifikerfin eru svokallað einfalt hitaveitukerfi, í
sveitarfélögunum á suðurnesjum, en hinsvegar er tvöfalt
hitaveitukerfi á flugvellinum og því skilar bakrennslið sér
þaðan aftur í dælustöð.
Ferskvatnstaka í Gjá og víðar fyrir orkuverið er því nokkuð
mikil eða allt að 1.200 tonnum á klukkustund (330 lítrar á
sekúndu) og vatnstaka vegna vatnsveitnanna er að meðaltali um
700 tonn á klukkustund (190 lítrar á sekúndu). Ekki er þó talin
hætta á of mikilli vatnsnotkun, þar sem reiknað er með að
meðalúrkoma sem fellur á 10 til 15 ferkílómetrum nægi til að
fullnægja allri vatnsþörf hitaveitunnar. Til samanburðar má
nefna, að Reykjanesskaginn í heild er um 580 ferkílómertrar.
Ferskvatnsdreifing, HS Veitur annast ferskvatndreifingu í nokkrum
sveitarfélögum á suðurnesjum. Einnig annast HS Veitur
ferskvatnsöflun fyrir nokkur sveitarfélög þar sem við sjáum ekki
um dreifingu þess, sjá mynd hér fyrir neðan.
Fráveita, HS Veitur annast lítið fráveitukerfi á fyrrverandi
herstöðvarsvæði á Keflavíkurflugvelli, að öðru leiti eru
fráveitukerfin á Suðurnesjum í þjónustu sveitarfélaga á svæðinu.
|
|