|
|
|
Hafnarfjarðarsvæði
HS Veitur annast dreifingu rafmagns í Hafnarfirði,
Bessastaðahreppi og hluta Garðabæjar (vestan lækjar) og þjónustu
því fylgjandi.
HS Veitur dreifir raforku svo til eingöngu með jarðköplum, þannig lítið
ber á rafdreifikerfinu ef frá eru taldar dreifistöðvar og
götuskápar. Þessi uppbygging lágmarkar að áhrif af veðri á
dreifinguna og veitir hæsta afhendingaröryggið. HS Veitur dreifir
rafmagni á nokkrum spennuþrepum eða 33kV, 12kV og 400 voltum.
|
|