HS Veitur annast dreifingu rafmagns í Hafnarfirði, Bessastaðahreppi og hluta
Garðabæjar (vestan lækjar) og þjónustu því fylgjandi. HS Veitur dreifir raforku
svo til eingöngu með jarðköplum, þannig lítið ber á rafdreifikerfinu ef frá eru
taldar dreifistöðvar og götuskápar.
Þessi uppbygging lágmarkar að áhrif af veðri á dreifinguna og veitir hæsta
afhendingaröryggið. HS Veitur dreifir rafmagni á nokkrum spennuþrepum eða 33kV,
12kV og 400 voltum.