Árborg
Starfstöð HS Veitna í Árborg er að Austurvegi 67 í húsnæði
Selfossveitna og þar eru fjórir starfsmenn sem sinna allri
almennri þjónustu við rafmagnsnotendur, ásamt allri umsýslu um
nýframkvæmdir og rekstur rafdreifikerfis HS Veitna í Árborg. Þar
er einnig móttaka á öllum umsóknum um rafmagns heimtaugar og
þjónustubeiðnum rafverktaka.
Í þjónustuveri Sveitafélagsins Árborgar að Austurvegi 2 er
móttaka á álestrarbeiðnum og notendaskiptum en sú þjónusta er
unnin af starfsmönnum sveitafélagsins, einnig er hægt að
skila þjónustubeiðnum í síma 422 5200 eða
hérna á heimasíðu HS Veitna.
Þjónustusvæði HS Veitna í Árborg eru þéttbýliskjarnarnir
Selfoss, Eyrarbakki og Stokkseyri en ekki dreifbýli Árborgar en
þó með nokkrum undantekningum.
