Starfstöð HS Veitna í Árborg er að Austurvegi 67 í húsnæði Selfossveitna og þar
eru fjórir starfsmenn sem sinna allri almennri þjónustu við rafmagnsnotendur,
ásamt allri umsýslu um nýframkvæmdir og rekstur rafdreifikerfis HS Veitna í
Árborg. Þar er einnig móttaka á öllum umsóknum um rafmagns heimtaugar og
þjónustubeiðnum rafverktaka.
Í þjónustuveri Sveitafélagsins Árborgar að Austurvegi 2 er móttaka á
álestrarbeiðnum og notendaskiptum en sú þjónusta er unnin af starfsmönnum
sveitafélagsins, einnig er hægt að skila þjónustubeiðnum í síma 422 5200 eða
hérna á heimasíðu HS Veitna.
Þjónustusvæði HS Veitna í Árborg eru þéttbýliskjarnarnir Selfoss, Eyrarbakki og
Stokkseyri en ekki dreifbýli Árborgar en þó með nokkrum undantekningum.