Suðurnes neysluvatn
HS Veitur á og rekur vatnsveitu í Reykjanesbæ, Garði,
Höfnum og rekur einnig vatnsveitu Keflavíkurflugvallar.
Sandgerði, Grindavík og Vogar fá neysluvatn frá HS Veitum en reka sín
dreifikerfi. Aðalvatnstökusvæði HS Veitna er gjá í hrauninu í Lágum.
Ferskvatn flýtur ofan á jarðsjó á þessum slóðum. Þykkt
ferskvatnslagsins ræðst af eðlisþyngdarmun ferskvatns og sjávar.
Ferskvatnslagið er rúmlega 40 metra þykkt og nær niður á um 58
metra. Þar tekur við 10-15 metra þykkt blandlag þar sem seltan
vex ört með dýpi. Á 70 metra dýpi er komið í fullsaltan jarðsjó.
Dælustöðin í Lágum er byggð yfir gjá sem fyllt var af grjóti og
möl eftir að komið hafði verið fyrir í henni fimm stálrörum sem
hvert um sig er 18,5 metra langt. Þrjár dælur sem afkasta 100
lítrum á sekúndu hver eru í stöðinni. Vatnsþörf í Reykjanesbæ og
á Vellinum var áætluð á bilinu 140 til 160 lítrar á sekúndu.
Reiknað var með að ein dæla væri í gangi að staðaldri, önnur
hluta úr sólarhring og sú þriðja til vara. Með aukinni vatnsþörf
er hægt að bæta dælum við en meginstofnæðin er hönnuð fyrir
hámarksrennsli uppá 400 lítra á sekúndu. Aðal miðlunarrými
veitunnar er í Grænásgeymi 2000 rúmmetra vatnstanki, í Keflavík
er 800 rúmmetra geymir og annar 700 rúmmetra til vara.
Nálægt Grænásgeymi er aðaldælustöð Keflavíkurflugvallar sem
dælir vatni úr Grænásgeymi inná dreifikerfið á
Keflavíkurflugvelli og upp á 1900 rúmmetra miðlunargeymi sem er
aðalforðabúr veitunnar á Keflavíkurflugvelli. Hann heldur uppi
stöðugum vatnsþrýstingi á kerfinu undir venjulegum
kringumstæðum. Einnig er hægt að dæla inná vatnskerfið með gömlu
kerfi sem dælir vatni úr 2800 rúmmetra tanki og er dælt inná
hann frá svokölluðu Patterson svæði úr fjórum holum sem
samanlagt afkasta 42 lítrum á sekúndu.
Garðurinn fær allt sitt vatn með dælingu úr tveimur borholum.
Tveir miðlunartankar eru á kerfinu 100 og 600 rúmmetrar.
Hafnir fá allt sitt vatn úr tveimur borholum, sem eru við
þjóðveginn um það bil 0,6 kílómetra austan við byggðina.
Saltmagn í þessu vatni er hátt. Til að vinna bót á því er
sérstakur búnaður sem síar salt úr neysluvatni, með því er
málmtæring minnkuð og vatnið stenst reglugerð um neysluvatn.
Þrýstingi er haldið á kerfinu með dælum og er notkunin um 3til5
lítrar á sekúndu.
Aðalstjórnstöð veitunnar í heild er í Svartsengi en
Keflavíkurflugvöllur hefur sjálfstæða stjórnstöð af sögulegu