Markmið HS Veitna hf er að tryggja að vinnustaðurinn einkennist af
fagþekkingu, verkkunnátta, þjónustulund, starfsgleði, heiðarleika og gagnkvæmri
virðingu. Möguleikar til að ná fram settum markmiðum byggjast fyrst og fremst á
því að fyrirtækið hafi yfir að ráða hæfu, áhugasömu og vel menntuðu starfsfólki,
sem getur axlað ábyrgð og sýnt frumkvæði í starfi, brugðist við síbreytilegum
þörfum og geti þannig tekið virkan þátt í framþróun fyrirtækisins. Einnig að
fyrirtækið leggi metnað sinn í að hlúa vel að sínu starfsfólki til að viðhalda
starfsánægju og góðum starfanda.
-
Hlutverk starfsmanna og stjórnenda
Er að veita bestu þjónustu hverju sinni og vera reiðubúið að takast á
við dagleg, ný og breytt verkefni. Stjórnendum ber að tileinka sér góða
og nútímalega stjórnunarhætti, sem meðal annars felast í að laða fram og
efla frumkvæði, kennsluhæfileika, almennan félags- og persónuþroska
starfsmanna. Þeir skulu jafnan leitast við að hafa samráð við starfsfólk
sitt um málefni er það varðar og beita sér fyrir sem víðtækastri sátt um
þau ásamt því að viðhalda virku upplýsingastreymi.
-
Jafnréttismál
Sjá
jafnréttisáætlun HS Orku
-
Starfsþróun og símenntun
Fyrirtækið hyggst fylgja eftir starfsþróun starfsmanna að því marki sem
hún getur orðið bæði starfsmanninum og fyrirtækinu til gagns.
Starfsþróun er ekki einhliða aðgerð starfsmanns eða stjórnanda. Hún er á
ábyrgð beggja og er hluti af þátttöku starfsmanns í starfsmannasamtölum,
símenntun, tilflutningi í starfi, breytingu á starfi og samvinnu.
Fyrirtækið gefur starfsmönnum kost á símenntun innan sem utan
stofnunarinnar til að auka þekkingu sína og faglega hæfni sem nýtist í
starfi.
-
Starfsmannasamtöl/viðtöl
Fyrirtækið stefnir á að komið verði á reglulegum
starfsmannasamtölum/viðtölum. Hagsmunir starfsmanna og fyrirtækisins
mætast í uppbyggjandi samtölum þar sem gagnkvæmar kröfur og væntingar
koma fram hjá hvorum tveggja.
-
Starfið og fjölskyldan
Fyrirtækið leitast við að skapa starfsmönnum sínum aðstæður til að
samræma kröfur starfs- og fjölskylduábyrgðar eins og kostur er.
Starfsmönnum skal einnig gert kleift að minnka við sig vinnu tímabundið
vegna fjölskylduábyrgðar eins og til dæmis umönnunar barna og sjúkra
fjölskyldumeðlima eftir því sem aðstæður leyfa hverju sinni. Ennfremur
skal þess gætt að yfirvinnu sé haldið innan hóflegra marka.
-
Ráðning og starfslok
Fyrirtækið leitast ávallt við að ráða sem hæfustu starfsmenn til starfa.
Allir umsækjendur hafa jafnan rétt til vinnu og ráðningar byggjast á
hæfileikum, menntun og reynslu þess sem ráðinn er og hæfni viðkomandi
til að inna starfið vel af hendi. Við ráðningar skal ávallt hafa
hliðsjón af gildandi jafnréttisáætlun. Gengið skal frá ráðningum með
ráðningasamningi. HS veitir nýjum starfsmönnum sem koma til starfa,
grunnþekkingu og fræðslu um helstu þætti fyrirtækisins og starfsfræðslu
eftir því sem við á hverju sinni. Starfsreglur HS Orku hf kveða á um að
starfsmenn láti af störfum eigi síðar en í lok þess mánaðar sem þeir
verða 70 ára. Þegar starfsmenn láta af störfum, hvort sem er vegna
aldurs eða annarra orsaka, skal þeim standa til boða viðtal við
starfsmannastjóra eða/og yfirmann meðal annars um líðan í starfi,
ástæður starfsloka og fleira.
-
Öryggismál og vinnuvernd
Fyrirtækið leggur metnað sinn í að öryggismál séu í hávegum höfð og er
starfandi virk öryggisnefnd innan fyrirtækisins.
-
Starfskjör
Fyrirtækið tekur tillit til ábyrgðar, frammistöðu og árangurs við
ákvörðun kjara, til þess að geta laðað að og haldið sem hæfustu
starfsfólki.
-
Viðvera og vinnutími
Starfsmönnum er ætlað að sinna skyldum sínum á umsömdum vinnutíma og
mæta stundvíslega til starfa.
-
Samskipti og siðareglur
Starfsmenn sýni samstarfsmönnum sínum og öðrum tilhlýðilega virðingu,
umburðarlyndi og jákvætt viðmót sem viðheldur og endurspeglar góðan
starfsanda. Ummæli, tjáning eða atferli starfsmanns gagnvart öðrum sem
ógnar, truflar eða ögrar og veldur óþægindum verður ekki liðið.
Starfsmenn skulu gæta fyllsta trúnaðar um þau málefni sem þeir verða
áskynja í starfi sínu varðandi starfsemi HS Orku hf og viðskiptavini.
-
Heilbrigði
Fyrirtækið hvetur og styrkir starfsfólk sitt fjárhagslega til að leggja
rækt við eigin heilsu og ástunda heilbrigt líferni. Fyrirtækið veitir
starfsmönnum leiðbeiningar og aðstoð til að vinna úr vandamálum svo sem
misnotkun vímuefna. Vinnustaðir HS Orku hf eru reyklausir.