Language
Söguágrip - 2010 Prenta  

Engar breytingar urðu á eignarhaldi fyrirtækisins á árinu.

Raforkunotkun, með eigin notkun HS Orku, dróst saman á veitusvæðinu um 1,24% og var 607,6 GWst. Notkun forgangsorku var 425,3 GWst og dróst saman um 1,32%. Heildar notkun á heitu vatni var svipuð og árið áður eða um 11,5 milljón tonn. Vatnsnotkun jókst í Eyjum um 4,2%.

Fjárfestingar á árinu námu alls 588 m.kr. eða um 35% hærri upphæð en árið áður.

Hafnarlína sló út tvisvar vegna bilunar. Þrjár bilanir voru í háspennu á Ásbrú, 60 Hz kerfinu. Tvær háspennubilanir urðu á 12 kv, önnur í Helguvík og hin í Njarðvík. Straumlaust varð í Sandgerði í febrúar vegna bilunar í háspennustreng. Hluti Keflavíkur varð straumlaus í nóvember vegna skammhlaups í olíuendamúffu í dreifistöð Sólvallagötu, töluvert tjón varð í stöðinni.
Í Hafnarfirði urðu tvær bilanir í 12 kv kerfinu, önnur vegna mistaka í stjórnstöð Landsnets og hin þegar háspennurofi sló út í aðveitustöðinni við Öldugötu.
Ein bilun varð í háspennustreng á Selfossi og fór út 1/3 hluti bæjarins. Þá var rafmagnið tekið af 20 MVA spenni í aðveitustöð og gerðar mælingar á honum en grunur lék á bilun í honum eftir jarðskjálftann 2008 en hann reyndist í lagi.
Bilanir í dreifikerfinu í Vestmannaeyjum voru í lágmarki og engin bilun í háspennukerfinu.

Fyrirtækið réðist í vatnsmælavæðingu fyrirtækja, stofnana og félagsamtaka á Suðurnesjum. Þannig voru alls um 900 hemlar teknir úr kerfinu og í staðinn settir rennslismælar.

Aðalfundur félagsins var haldinn föstudaginn 19. mars og var mætt af hálfu allra hluthafa eða 100%.

Vegna eldgosins í Fimmvörðuhálsi og síðar Eyjafjallajökli í mars og apríl var viðbúnaður og reglulegar mælingar á vatnsbólinu við Syðstu Mörk en vatnsbólið þjónar Vestmannaeyjum. Gæði vatns var mælt reglulega vegna hættu á kvikuinnskoti í vatnsbólin.

Fyrirtækið festi kaup á þjónustubifreiðunum sem ganga fyrir metangasi. Þetta eru fyrstu bifreiðarnar sem fyrirtækið kaupir sem ekki ganga fyrir bensíni eða díselolíu.

Fyrirtækið hóf í samstarfi við InExchange útsendingar á rafrænum reikningum á NES-UBL formi.

Vinna við stefnumótun fyrirtækisins hófst á árinu.

Vinna við lagningu nýrrar kaldavatnsstofnæðar fyrir Sveitarfélagið Garð fór af stað. Einnig var lögð ný 350mm stálpípa í 500mm plastkápu frá Bolafót í Njarðvík að Asparhlíð til styrkingar á dreifikerfi heita vatnsins til Helguvíkur, Garðs og Sandgerðis.

Fjöldi starfsmanna sem störfuðu að hluta eða öllu leiti fyrir HS Veitur í árslok var 101 í 99 stöðugildum.

Sækja um aðgang
Kennitala:
Tölvupóstur:
Sími:

Umsókn um aðgang

Þegar þú hefur skilað inn kennitölu, netfangi og símanúmeri munum við senda til þín bréf í pósti með lykilorði en notendanafnið þitt er kennitalan þín.
Nýtt lykilorð
Kennitala:

Tapað lykilorð

Ef þú hefur glatað lykilorðinu þínu geturðu fengið nýtt sent í tölvupósti með því að slá inn kennitöluna þína og smella á Sækja um nýtt lykilorð.
Mín síða
Kennitala:
Lykilorð:

Innskráning á mína síðu

Hér getur þú skráð þig inn og skoðað yfirlit yfir notkun þína á rafmagni og vatni.