Hönnun og hugmynd
Kennimerki HS Veitna hf er upprunalega merki Hitaveitu Suðurnesja. Merkið var
hannað og teiknað af Tryggva T. Tryggvasyni í kringum 1979 - 80 en hann starfaði
þá á Auglýsingastofu Kristínar Þorkelsdóttur.
Hugmyndin að bakvið merkið er að sína kalt vatn úr jarðlögunum (bláar línur)
hitað upp með heitu vatni (rauðar línur). Óreglulegu línurnar tákna jarðlög en
beinu línurnar þegar orkan hefur verið beisluð.
Hér má nálgast merki HS Veitna í mismunandi útgáfum. Smellið á tenglana fyrir
neðan merki til að hlaða niður í viðeigandi útgáfu.