Forsíða Þjónusta Framkvæmdaaðilar Dreifing HS Veitur hf Mín síða
 
 
Stefna
Eigendur
Eignarhlutir
Skipurit
Stjórn
Starfsmenn
Ársskýrslur
Fjárfestaupplýsingar
Störf í boði
Atvinna
Söguágrip
Kynningarefni
Kennimerki
 
Íslenska Ánægjuvogin

Íslenska Ánægjuvogin er samstarfsverkefni nokkurra Evrópuþjóða um mælingar á ánægju viðskiptavina helstu fyrirtækja í nokkrum atvinnuvegum.

Markmiðið er að láta fyrirtækjum og í sumum tilfellum neytendum í té samræmdar mælingar á ánægju viðskiptavina.   Þá er og markmið verkefnisins að meta nokkra aðra þætti sem tengjast ánægju viðskiptavina – hafa áhrif á hana (t.d. ímynd og mat á gæðum) eða verða fyrir áhrifum hennar (tryggð viðskiptavina). Mikilvægi mælinga á ánægju viðskiptavina og áhrifaþáttum hennar er mikið þar sem tryggilega hefur verið sýnt fram á í rannsóknum að því ánægðari sem viðskiptavinir fyrirtækis eru því betri afkomu má fyrirtækið búast við.

happyface1    

Í rannsókninni er ánægja viðskiptavina fyrirtækja metin ásamt nokkrum öðrum yfirþáttum, svo sem ímynd, væntingum, gæðum vöru og þjónustu, verðmæti og tryggð viðskiptavina. Mælingar eru staðlaðar á milli fyrirtækja, atvinnugreina og þjóða; það er, viðskiptavinir eru spurðir nokkurn veginn sömu spurninga óháð fyrirtæki, atvinnugrein eða þjóð og þannig verða niðurstöður samanburðarhæfar.

Árið 2008 er sjöunda árið sem Íslenska ánægjuvogin er notuð til að meta ánægju með rafveitur á Íslandi og við starfsfólk  HS Veitna / HS Orku (Hitaveitu Suðurnesja ) höfum unnið þessi verðlaun frá upphafi mælinga.

Þátttakendur:

ü  Slembiúrtak úr þjóðskrá af öllu landinu, á aldrinum 16-79.

ü  250 aðalviðskiptavinir fyrir hvert fyrirtæki.

Framkvæmd

ü  Símakönnun.

Mælingar og óvissa

ü  Mældir voru nokkrir yfirþættir í rannsókninni (s.s. ímynd, gæði, ánægja, tryggð o.s.frv.)

ü  Á bak við hvern þátt eru nokkrar spurningar

ü  Hver þáttur er á kvarðanum 0 til 100, þar sem hærri tala gefur til kynna betri frammistöðu fyrirtækis á þættinum

ü  Hver spurning að baki hvers þáttar er á kvarðanum 1 til 10, þar sem hærri tala gefur til kynna betri frammistöðu fyrirtækis á spurningunni

ü  Óvissa er að jafnaði +/- tvö stig á kvarðanum 0 til 100 fyrir þættina. Þá er miðað við 95% marktektarmörk

Munur á okkar fyrirtæki á hverjum yfirþætti fyrir sig og meðaltali allra rafveitna til samans þarf að vera 2 til 3 stig til að hann sé marktækur.

Þannig er ánægja viðskiptavina HS Veitna/HS Orku (Hitaveitu Suðurnesja) (69,8) marktækt hærri en meðalánægja viðskiptavina allra rafveitna (63,15).