Forsíða Þjónusta Framkvæmdaaðilar Dreifing HS Veitur hf Mín síða
 
 

Þjónusta og eignarhald HS Orku hf og HS Veitna hf.

Sannleikanum samkvæmt.

.

Af gefnu tilefni og vegna þeirra rangfærslna, sem að undanförnu hafa birst í blöðum og viðtölum er brýn ástæða nú að gera glögga og sanna grein fyrir eignarhaldi og þjónustu HS Orku hf og HS Veitna hf.

HS Orka hf:   Með kaupum Magma Energy á hlut Geysis Green Energy eignast Magma 98,5% í HS Orku hf. Bæjarfélög á Suðurnesjum eiga 1,5% hlut í HS Orku hf. Það sem Magma hefur eignast er:

·        Orkuversbyggingar og þann vélbúnað sem þau hýsa.

·         Borholur ásamt þeim búnaði sem tengja þær við orkuverin.

·      Aðveituæðar hitaveitu frá orkuverinu í Svartsengi annars vegar að Fitjum og hins vegar að Grindavík.

·         Tankar ásamt tengdum dælustöðvum annars vegar á Fitjum og hins vegar við Þorbjörn.

·         Rétt til að nýta jarðhitalindirnar til 65 ára. Nýtingatími til 65 ára er skilgreindur í lögum sem hámarksnýtingartími. Eftir að jarðhitalindirnar hafa verið nýttar í 30 ár verði samið um frekari nýtingu og þá til 65 ára. Nýr samningur um framlengda nýtingu jarðhitalindanna lengir því nýtingartímann um 32,5 ár. Eftir að samið hefur verið um framlengingu nýtingar verður nýtingatíminn 97,5 ár en ekki 130 ár eins og haldið hefur verið fram.

·         Aðgang að mannauði og rekstrarreynslu HS Orku hf.

HS Orka hf greiðir ár hvert til bæjarfélaganna auðlindagjald, lóðarleigu, fasteignagjöld og önnur opinber gjöld.

HS Veitur hf sem eru alfarið í eigu bæjarfélaga annasta grunnþjónustuna og kaupir heitt vatn, kalt vatn og rafmagn af HS Orku hf og dreifir til heimila og fyrirtækja.

HS Veitur hf: HS Veitur eru alfarið í opinberri eigu: Reykjanesbær 66,748%, Orkuveita Reykjavíkur 16,582% Hafnafjarðarbær 15,418%, Grindavíkurbær 0,509%, Sandgerðisbær 0,323%, Garður 0,320% og Vogar 0,100%.

Eignir HS Veitna hf eru:

·         Dreifikerfi hitaveitu með tilheyrandi dælustöðvum og stjórnbúnaði

·         Aðveitu- og dreifikerfi ferskvatns með tilheyrandi tönkum og stjórnbúnaði

·         Aðveitu- og dreifikerfi rafmagns með tilheyrandi aðveitu- og spennistöðvum ásamt stjórnbúnaði

HS Veitur hf veitir íbúum og fyrirtækjum grunnþjónustuna þ.e.a.s. selur viðskiptavinum heitt vatn, kalt vatn og rafmagn ásamt því að tengja viðskiptavininn dreifikerfunum og þjóna þeim.

Verðlagning á heitu- og köldu vatni er háð verðlagsákvæðum undir ströngu eftirliti Orkustofnunar. Ekki er heimilt að hækka verð á heitu og köldu vatni umfram verðlagsþróun í landinu. Samkvæmt lögum er rafmagn markaðsvara og er því notendum heimilt að kaupa það hjá þeim fyrirtækjum sem það bjóða.

Bæjarfélög og ríkið:

Grindavíkurbær:

·         Lóð orkuversins í Svartsengi og jarðhitalindin, sem orkuverið nýtir, er í eigu bæjarfélagsins.

·         HS Orka hf greiðir bæjarfélaginu árlega lóðarleigu og auðlindagjald háð nýtingu á hverjum tíma

Reykjanesbær:

·     Lóð orkuversins á Reykjanesi og hluti jarðhitalindarinnar, sem orkuverið nýtir, er í eigu bæjarfélagsins.

·         HS Orka hf greiðir bæjarfélaginu árlega lóðarleigu og auðlindagjald háð nýtingu á hverjum tíma.

Ríkið:

HS Orka hf greiðir ríkinu leigu á landi undir borholur og lagnir ásamt auðlindagjald háð nýtingu á hverjum tíma.

Albert Albertsson, aðstoðarforstjóri.


Fyrri fréttNæsta frétt

FréttirInnranet   
 
27.8.2010
HS Veitur hf -Árshlutareikningur janúar til júní 2010

Árshlutareikningur HS Veitna hf. var samþykktur á fundi stjórnar í dag, 27. ágúst 2010.



16.8.2010
Samvinna HS Veitna hf og HS Orku hf.

HS Veitum hf barst eftirfarandi erindi sunnudaginn 15. ágúst kl. 13:35 frá þeim Haraldi Hallgrímssyni (210974-3939) og Jóni Þórissyni (210974-3939 en á væntanlega að vera 120154-5599) en þeir, a.m.k. Jón, hafa talsvert tekið þátt í umræðunni upp á síðkastið um HS Orku hf með Björk Guðmundsdóttur.



21.5.2010
Þjónusta og eignarhald HS Orku hf og HS Veitna hf.

Sannleikanum samkvæmt.

.

Fleiri fréttir