|
HS Orka hf og HS Veitur hf skrifuðu undir styrktarsamninga við nokkrar aðila nýverið og veittu auk þess styrki til fjögra annarra verkefna.
Markmiðið með styrktarsamningunum er að efla starfssemi viðkomandi félaga auk þess sem aðilar munu auglýsa og vinna verkefni fyrir fyrirtækin eftir því sem tækifæri gefast til.
Aðilarnir sem styrktarsamningar voru gerðir við eru: Knattspyrnudeild Keflavíkur. Körfuknattleiksdeild Keflavíkur. Knattspyrnudeild Grindavíkur. Knattspyrnudeild Njarðvíkur. Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur. Knattspyrnudeild Keflavíkur kvennaknattspyrna. Knattspyrnudeild Reynis. Björgunarsveitin Suðurnes.
Auk þessa veitti fyrirtækið fjórum aðilum styrk, ýmist vegna sérverkefna eða vegna starfssemi félags. Aðilarnir eru: Sólheimar, bygging Tómasarsmiðju í tilefni af 80 ára afmæli Sólheima 2010. Björgunarsveitin Björg Eyrarbakka, kaup á björgunarbát. Blái Herinn. Lundur forvarnarverkefni.
Meðfylgjandi myndir voru teknar við undirritun styrktarsamninganna.

Þorsteinn Magnússon framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Keflavíkur og Júlíus Jónsson forstjóri HS Orku hf og HS Veitna hf undirrita samning.

Margeir Margeirsson stjórnarmaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur og Júlíus Jónsson forstjóri HS Orku hf og HS Veitna hf undirrita samning.

Þorsteinn Gunnarsson formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur og Víðir S. Jónsson verkefna- og kynningarstjóri HS Orku hf undirrita samning.

Bjarni Sæmundsson formaður knattspyrnudeildar Njarðvíkur og Júlíus Jónsson forstjóri HS Orku hf og HS Veitna hf undirrita samning.

Jón Guðlaugsson formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur og Víðir S. Jónsson verkefna- og kynningarstjóri HS Orku hf undirrita samning.

Andrés Hjaltason formaður kvennaráðs knattspyrnudeildar Keflavíkur og Víðir S. Jónsson verkefna- og kynningarstjóri HS Orku hf undirrita samning.

Kári Viðar Rúnarsson formaður Björgunarsveitar Suðurnes og Júlíus Jónsson forstjóri HS Orku hf og HS Veitna hf undirrita samning.

Guðmundur Skúlason framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Reynis og Víðir S. Jónsson verkefna- og kynningarstjóri HS Orku hf undirrita samning. |