Efnisval í lagnir
HS Veitur hf leggur allar lagnir úr plasti. Í húskerfin geta húseigendur valið á
milli nokkra lagnategunda. Bent er á vef langavals,
lagnaval.is til að sjá hvað hentar best í lagnir eftir viðkomandi svæðum.
Galvanhúðuð rör á alls ekki að nota í kalt vatn.
Drekkið vatnið beint úr krananum
Að drekka átappað vatn úr flöskum er siðlaust og kominn tími til að setja af
stað herferð til að draga úr neyslunni að mati umhverfisráðherra Bretlands.
Framleiðsla á einum lítra af vatni á flösku leiðir til að minnsta kosti 600
sinnum meiri losunar á koldíoxíði en sama magn af vatni úr krana. Talið er að
neysla einnar vatnsflösku leiði til jafn mikillar mengunar og stafar af því að
aka meðalbifreið tveggja kílómetra vegalengd.
Sumar gerðir drykkjarvatns
sem seldar eru í Bretlandi eru framleiddar í mörg þúsund kílómetra fjarlægð, en
samkvæmt sænskri rannsókn eru umhverfisáhrif af neyslu vatns úr flöskum að
minnsta kosti 90 til 1000 sinnum meiri en vatns úr krana.