Hemla og mæligrindur
Árið 2006 var byrjað að nota nýja gerð hemlagrinda í sölukerfi HS Veitna hf. Er það tilkomið vegna þess að framleiðandi eldri lokanna (hemlana) er að hætta með þá í framleiðslu. Nýja gerðin er þó aðeins sett upp í nýjum íbúðarhúsum. Í atvinnuhúsnæði er sett upp mælagrind.
HS Veitur hf á hluta af húsgrind og þjónustar það, sjá gult spjald með útskýringum fest á grind. Auk þess á HS Veitur hf inntakið sjálft og heimæð að húsinu. Annar búnaður er í eigu húseiganda.
Með nýju lokunum (hemlunum) er ekki þörf fyrir blendi, heldur hemlar fyrri
hemill í grindinni neysluvatn og sá síðari inn á hitakerfið HS Veitur hf á búnað
í grind sem merkt er frá 1 til 4 og þjónustar hann. Auk þess á HS Veitur hf
inntakið sjálft og heimæð að húsinu. Annar búnaður er í eigu húseiganda.
Eldri gerð hemlagrindar:
Sjá nánari skýringu á fyrstu mynd til hægri.
Nýrri gerð hemlagrindar:
Sjá nánari skýringu á annari mynd til hægri.
Mælagrind:
Sjá nánari skýringu á þriðju mynd til hægri.