Spurningar og svör ferskvatn
Hvers vegna er ferskvatnið hjá mér alltaf brúnt fyrst þegar ég skrúfa
frá ?
Það stafar líklega af því að lagnir í húsinu er orðnar gamlar og lélegar og
trúlega er um galvanhúðaðar stállagnir að ræða. Ráðlagt er að endurnýja þær. Ef
inntak er einnig úr galvanhúðuðu stáli er ráðlagt að tala við okkur og óska
eftir endurnýjun á inntaki um leið og framkvæmdir hefjast við endurnýjun á
húskerfinu.
Hvers vegna er lélegur þrýstingur, vatnið rétt lekur þegar ég skrúfa
frá?
Það stafar af því að lagnir í húsinu er orðnar gamlar og lélegar og trúlega er
um galvanhúðaðar stállagnir að ræða. Ráðlagt er að endurnýja þær.
Hvers vegna er sírennsli í klósettkassanum hjá mér?
Þá þarf að skipta um stykki í klósettkassanaum sem stjórnar innrennslinu í hann.
Slíkt er hægt að fá í verslunum með pípulagningavörur. Sírennsli í klósettkassa
er leiðinlegt og er auk þess sóun á vatni. Þegar vatn rennur stöðugt er einhver
staðar dæla í gangi til að halda uppi vatnsstreyminu og það hefur í för með sér
sóun á raforku.
Gæði vatnsins, er fylgst með því?
Mörg lög og reglugerðir eru um vatnsveitur á Íslandi. Ferskvatn flokkast sem
matvæli og ber vatnsveitum m.a. að uppfylla matvælareglugerð og vera með
sérstakt innra eftirlit og á þeim forsendum fá þær starfsleifi. Eftirlit með
gæðum vatnsins er í höndum Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja,
hes.is fyrir Suðurnes og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands,
heilbrigdiseftirlitid.is fyrir Vestamanneyjar. Þeir sjá um að taka sýni
reglulega úr vatninu og upplýsingar varðandi það er hægt að nálgast hjá þeim.
Að hverju þarf að huga við notendaskipti?
Þegar notendaskipti hafa verið tilkynnt HS Veitum hf yfirfara starfsmenn
hemlagrindina (á Suðurnesjum) og lesa af rafmagnsmælum, sem er gert til að
tryggja nýjum notendum að hitaveitugrindin sé í lagi og að ljós sé mælistaða
þegar nýr notandi hefur raforkukaup.
Af hverju hitnar einn ofn en ekki hinir?
Flestir ofnkranar eru hitastýrðir og sjálfvirkir og þeim verður að halda við.
Lokarnir geta einfaldlega staðið á sér af mörgum orsökum til dæmis óhreinindum,
sliti og fleiru. Séu hitanemar lokanna birgðir til dæmis með gluggatjöldum þá fá
þeir fölsk boð sem lokað geta fyrir streymi til ofnsins. Sjá síðu um
jafnvægisstillingu.
Er í lagi að klæða af hemlagrindina?
Það má alls ekki klæða af hemlagrindina þar sem það getur hindrað eðlilegt
aðgengi að henni vegna reglulegs eftirlits.
Má ég eitthvað gera sjálfur ?
Að sjálfsögðu geta húseigendur gert sitthvað í grindinni sjálfir. Hreinsað síu
framrásar og bakrásar, litið á hita- og þrýstimæla og fengið tilfinningu fyrir
hitakerfinu. Farið yfir ofnlokana og tryggt að þeir séu liðugir og vinni rétt.
Hvenær á ég að fá viðgerðamann frá HS Veitum hf ?
Þú getur alltaf haft samband við okkur, að degi sem nóttu. Ef til dæmis kalt er
í húsinu, grunur um leka eða neysluvatnið lélegt er ástæða til að kalla til
viðgerðamann. Á daginn er það þjónustufulltrúi sem tekur á móti beiðni þinni og
skráir hana niður. Viðgerðamenn hafa síðan samband varðandi nánari tímasetningu
á komu. Bakvakt er í gangi eftir venjulegan vinnutíma til að tryggja að alltaf
er hægt að ná í viðgerðamann.
Ef einhverjar spurningar vakna þá vinsamlega hafið samband við HS Veitur hf.
í síma 422-5200 eða sendið okkur fyrirspurn á hs@hs.is