Language
Rafmagn Prenta  

Spurningar og svör rafveita

Hvað er aðaltafla?
Til að taka á móti raforku þarf rafmagnstöflu sem nefnist aðaltafla. Aðaltaflan er hjarta rafkerfis hússins. Aðaltaflan er oft eina taflan í minni einbýlis- og raðhúsum. Í stærri húsum eru oftast einnig undirtöflur sem kallast greinitöflur og fá tengingu frá aðaltöflu.Hver rafmagnsheimtaug frá HS Veitna verður að tengjast einni aðaltöflu. Krafa HS Veitna hf um búnað í aðaltöflu er aðalvarrofi (í eldri töflum geta aðalvar og aðalrofi verið í tvennu lagi) og aðstaða fyrir orkumælir eða orkumæla sé um fleiri notendur að ræða. Taflan sjálf og búnaður í henni þarf að uppfylla ákvæði reglugerða um raforkuvirki.

Hvað er kílówattstund (kwh)?
Kílówattstund er mælieining fyrir orku. Orka er margfeldi af afli og tíma Aflið er mælt í kílówöttum (1000 Wött er 1 kílówatt) Tíminn er mældur í klukkustundum. Afl tækja er skráð á kenniskjöld tækis, eða merkiplötu þess. Þar er aflið gefið upp í kílówöttum (kW) eða í wöttum (W). Ef afl er gefið upp í wöttum þarf að deila með 1000 til að finna hversu mörg kílówött tækið tekur. Athugið að rugla kílówöttum ekki saman við kílówattstundir. Kílówattstundir verða fyrst til þegar tækið er í gangi í einhvern tíma. Til að finna hversu mikla orku tækið tekur þarf að margfalda afl þess í kílówöttum með þeim klukkustundum sem það er í gangi.

Hvað er ótryggt rafmagn?
Raforka sem seld er samkvæmt sérstökum samningi milli rafveitu og orkukaupanda og samningurinn síðan staðfestur af Landsvirkjun. Helstu skilmálar samningsins eru meðal annars þeir að uppsett afl sé að minnsta kosti 100kw og árleg notkun 500.000.kwh að lágmarki. Einnig að kaupandi uni skerðingu og að verðlagning rafmagnsins taki mið af vatnsbúskap Landsvirkjunar og líklegri skerðingu. Ótryggt í þessu sambandi merkir að Landsvirkjun ábyrgist ekki afhendingu en á ekkert skylt við öryggi eða öryggismál almennt.

Hvað eru sparperur?
Sparperur eru flúrperur sem passa í perustæði fyrir venjulegar glóperur og eru með nauðsynlegan rafbúnað innbyggðan . Sparperur gefa álíka mikið ljós og glóperur sem nota fjórum til fimm sinnum meira rafmagn. Vandaðar sparperur eiga að endast í meira en 8.000 klukkustundir og þola að minnsta kosti 20.000 kveikingar. Til samanburðar má geta þess að árið er 8.760 klukkustundir. Sparperur eru hins vegar enn sem komið er talsvert dýrari.

Ef einhverjar spurningar vakna þá vinsamlega hafið samband við HS Veitur hf.
í síma 422-5200 eða sendið okkur fyrirspurn á hs@hs.is

Sækja um aðgang
Kennitala:
Tölvupóstur:
Sími:

Umsókn um aðgang

Þegar þú hefur skilað inn kennitölu, netfangi og símanúmeri munum við senda til þín bréf í pósti með lykilorði en notendanafnið þitt er kennitalan þín.
Nýtt lykilorð
Kennitala:

Tapað lykilorð

Ef þú hefur glatað lykilorðinu þínu geturðu fengið nýtt sent í tölvupósti með því að slá inn kennitöluna þína og smella á Sækja um nýtt lykilorð.
Mín síða
Kennitala:
Lykilorð:

Innskráning á mína síðu

Hér getur þú skráð þig inn og skoðað yfirlit yfir notkun þína á rafmagni og vatni.