Language
Gönguferðir með HS Prenta  


Reykjanes gönguferðir 2011


Þetta er fjórða árið í röð sem boðið er upp á metnaðarfulla göngudagskrá um Reykjanesið undir leiðsögn Rannveigar Garðarsdóttur leiðsögumanns í samvinnu við fyrirtæki á svæðinu. HS Orka hf hefur verið styrktaraðili frá upphafi en nýir styrktaraðilar eru HS Veitur hf og Bláa Lónið. Verkefnið er unnið í samvinnu við Víkurfréttir, SBK, Björgunarsveitina Suðurnes og 66°N.


Í boði verða alls tíu göngur á tímabilinu júní - ágúst. Um er að ræða léttar göngur í bland við erfiðari og lengri fjallgöngur, eina krefjandi hjólaferð og tvær “strætógönguferðir”. Í leiðalýsingu fyrir gönguferðirnar er tilgreint hvað gangan taki langan tíma, erfiðleikastig, hvort göngu ljúki á sama stað og hún hófst á og hvort farið sé á upphafsstað með rútu eða strætó. Áætlaður tími gerir ekki ráð fyrir ferðatíma til og frá göngustað sem getur verið breytilegur. Í hverri göngu er tekinn nestis pása þar sem sagt er frá ýmsum fróðleik um nánasta umhverfi.

Dagskrá fyrir sumarið 2011 er að finna hér


Sækja um aðgang
Kennitala:
Tölvupóstur:
Sími:

Umsókn um aðgang

Þegar þú hefur skilað inn kennitölu, netfangi og símanúmeri munum við senda til þín bréf í pósti með lykilorði en notendanafnið þitt er kennitalan þín.
Nýtt lykilorð
Kennitala:

Tapað lykilorð

Ef þú hefur glatað lykilorðinu þínu geturðu fengið nýtt sent í tölvupósti með því að slá inn kennitöluna þína og smella á Sækja um nýtt lykilorð.
Mín síða
Kennitala:
Lykilorð:

Innskráning á mína síðu

Hér getur þú skráð þig inn og skoðað yfirlit yfir notkun þína á rafmagni og vatni.