Viðskiptavinur
Skilar inn beiðni um skammtímatengingu ferskvatnsheimæðar sem fæst hér til
útprentunar og hér til
útfyllingar/útprentunar og á afgreiðslustöðum HS Veitna hf.
Heimlagnarbeiðnin þarf að undirskrifast af eiganda/forráðamanni vinnuskúrs.
Hvar skal vinnuskúrinn staðsettur ? –
sjá teikningu hér.
Skila þarf með beiðninni teikningu sem sýnir staðsetningu vinnuskúrs á
byggingarreit.
Athugið að bráðabirgðaheimlagnir eru aftengdar þegar aðalheimlagnir eru tengdar,
nema um annað sé samið sérstaklega.
Gjaldkeri HS Veitna hf
Gefur út reikning ef ekki hefur þegar verið greitt fyrir tenginguna og sendir
til viðskiptavinarins.
Viðskiptavinur
Greiðir reikninginn fyrir skammtímatenginguna áður en áhleyping á sér stað.
Viðskiptavinur gerir lögnina klára til tengingar við dreifikerfi og lætur
verkstjóra HS Veitna hf vita þegar lögnin er tilbúin til tengingar.
Vatnsdeild HS Veitna hf
Tengir vinnuskúrinn við dreifikerfi hitaveitu, þegar lögnin er tilbúin til
tengingar.
Viðskiptavinur
Þegar viðskiptavinur vill láta aftengja vinnuskúrinn skilar hann aftengibeiðni
til HS Veitna hf. Beiðni um aftenginu er hægt að hringja inná þjónustuborð í
síma 422 5200.
Ekki er greitt fyrir aftenginguna.