Language
Hvernig gengur skammtímatenging rafmagns í vinnuskúr fyrir sig? Prenta  

Viðskiptavinur
Semur við rafverktaka og skilar inn beiðni um skammtímaheimtaug með þjónustubeiðni S0.802 sem fæst hér til útprentunar og hér til útfyllingar/útprentunar og á afgreiðslu-
stöðum HS. Eyðublaðið þarf að undirskrifast af rafverktaka og umráðamanni/eiganda vinnuskúrs.

Hvar skal vinnuskúrinn staðsettur ? – sjá teikningu hér.

Skila þarf með beiðninni teikningu sem sýnir staðsetningu vinnuskúrs á byggingarreit.

Athugið að bráðabirgðaheimlagnir eru aftengdar þegar aðalheimlagnir eru tengdar, nema um annað sé samið sérstaklega




Rafmagndeild HS Veitna hf
Grefur fyrir skammtímaheimtaug og tengir í götukassa. Heimtaugarendinn er dreginn inní eða að vinnuskúr.

Þegar taugin er tilbúin til áhleypingar lætur verkstjóri verksins hjá HS Veitum hf tengilið verkkaupa vita.




Gjaldkeri HS Veitur hf
Gefur út reikning ef ekki hefur þegar verið greitt fyrir tenginguna og sendir til viðskiptavinarins.




Viðskiptavinur
Greiðir reikninginn fyrir skammtímatenginguna áður en áhleyping á sér stað.




Mæladeild HS Veitna hf
Þegar greiðsla hefur borist fyrir tengingunni setja starfsmenn HS Veitna hf upp rafmagnsmælinn og spennusetja töfluna.




Viðskiptavinur
Þegar viðskiptavinur vill láta aftengja vinnuskúrinn skilar hann aftengibeiðni til HS Veitna hf. Beiðni um aftenginu er hægt að hringja inná þjónustuborð í síma 422 5200.

Ekki er greitt fyrir aftenginguna.

Sækja um aðgang
Kennitala:
Tölvupóstur:
Sími:

Umsókn um aðgang

Þegar þú hefur skilað inn kennitölu, netfangi og símanúmeri munum við senda til þín bréf í pósti með lykilorði en notendanafnið þitt er kennitalan þín.
Nýtt lykilorð
Kennitala:

Tapað lykilorð

Ef þú hefur glatað lykilorðinu þínu geturðu fengið nýtt sent í tölvupósti með því að slá inn kennitöluna þína og smella á Sækja um nýtt lykilorð.
Mín síða
Kennitala:
Lykilorð:

Innskráning á mína síðu

Hér getur þú skráð þig inn og skoðað yfirlit yfir notkun þína á rafmagni og vatni.