Language
Hvernig gengur tenging húsnæðis við hitaveitudreifikerfið fyrir sig? Prenta  

Viðskiptavinur
Skilar inn beiðni um hitaveituheimæð sem fæst hér til útprentunar og hér til útfyllingar/útprentunar og á afgreiðslustöðum HS Veitna hf. Heimlagnarbeiðnin þarf að undirskrifast af eiganda húsnæðis.

Viðskiptavinur þarf að tilgreina á beiðninni hverskonar húsnæði er um að ræða og skrá pípulagningarmeistara, byggingarstjóra og tengilið ásamt fleiru.

Hvar skal heimæðin fara inní húsnæði? – Með umsókn þarf að fylgja málsett afstöðumynd, málsett grunnmynd og skráningartafla húsnæðis.

Sjá dæmi um málsetta afstöðumynd hér.

Sjá dæmi um málsetta grunnmynd hér.

Sjá dæmi um skráningartöflu húsnæðis hér.

Sjá frekari skilmála hér.

Athugið að húseigandi þarf að ganga frá vegg (yfirborðsfrágangur) við inntaksstað áður en lögnin er lögð inní húsnæði.

Sjá frágang á inntaksgötum í sökkul og gólfplötu fyrir heimlögn hér.

Sækja skal samtímis um allar veitutengingar sem HS annast.




Vatnsdeild HS Veitna hf
Hannar tengingu húsnæðis og tengir heimæðina við götulögn. Heimæðin er tengd inní húsnæðið og inntaksloki settur á enda hennar.




Gjaldkeri HS Veitna hf
Gefur út reikning fyrir heimæðinni ef ekki hefur þegar verið greitt fyrir heimæðina og sendir til viðskiptavinarins.




Viðskiptavinur
Greiðir reikninginn fyrir heimtaugina áður en áhleyping á sér stað.

Þegar óskað er eftir uppsetningu grindar/áhleypingu skal vera búið að ganga frá veggnum sem grindin skal staðsett á (yfirborðsfrágangur).

Ef um er að ræða fjölbýli þá þarf að skila inn skráningarblaði veitna í síðasta lagi með áhleypingarbeiðni – sjá skráningarblað hér.

Nægilegt er að óska eftir uppsetningu grindar símleiðis 422 5200 með 1-3 daga fyrirvara.




Vatnsdeild HS Veitna hf
Setur upp grindina þegar beiðni um grindaruppsetningu hefur verið móttekin. Hleypir vatni á grindina þegar greiðsla hefur borist fyrir heimlögninni.

Sækja um aðgang
Kennitala:
Tölvupóstur:
Sími:

Umsókn um aðgang

Þegar þú hefur skilað inn kennitölu, netfangi og símanúmeri munum við senda til þín bréf í pósti með lykilorði en notendanafnið þitt er kennitalan þín.
Nýtt lykilorð
Kennitala:

Tapað lykilorð

Ef þú hefur glatað lykilorðinu þínu geturðu fengið nýtt sent í tölvupósti með því að slá inn kennitöluna þína og smella á Sækja um nýtt lykilorð.
Mín síða
Kennitala:
Lykilorð:

Innskráning á mína síðu

Hér getur þú skráð þig inn og skoðað yfirlit yfir notkun þína á rafmagni og vatni.