Viðskiptavinur
Skilar inn beiðni um hitaveituheimæð sem fæst hér til
útprentunar
og hér til
útfyllingar/útprentunar og á afgreiðslustöðum HS Veitna hf.
Heimlagnarbeiðnin þarf að undirskrifast af eiganda húsnæðis.
Viðskiptavinur þarf að tilgreina á beiðninni hverskonar húsnæði er um að ræða og
skrá pípulagningarmeistara, byggingarstjóra og tengilið ásamt fleiru.
Hvar skal heimæðin fara inní húsnæði? – Með umsókn þarf að fylgja málsett
afstöðumynd, málsett grunnmynd og skráningartafla húsnæðis.
Sjá dæmi um málsetta
afstöðumynd hér.
Sjá dæmi um málsetta grunnmynd
hér.
Sjá dæmi um neysluvatnsteikningar í
grunni húsnæðis.
Sjá frekari skilmála
hér.
Ástæða er til að taka sérstaklega fram að neysluvatnslagnir skulu lagðar ofar en
skolplagnir.
Sjá frágang á inntaksgötum í sökkul og gólfplötu fyrir
heimlögn hér.
Sækja skal samtímis um allar veitutengingar sem HS annast í einu.
Vatnsdeild HS Veitna hf
Hannar tengingu húsnæðis og tengir heimæðina við götulögn. Heimæðin er tengd
inní húsnæðið, inntaksloka, einstefnuloka og í sumum tilfellum mæli komið upp af
starfsmönnum HS Veitna hf. Þrýstingi er síðan hleypt á æðina.
Gjaldkeri HS Veitna hf
Gefur út reikning fyrir heimæðinni ef ekki hefur þegar verið greitt fyrir
heimæðina og sendir til viðskiptavinarins.
Viðskiptavinur
Greiðir reikninginn fyrir heimæðina.