Viðskiptavinur
Semur við rafverktaka og skilar inn beiðni um heimtaug sem fæst hér til
útprentunar og hér til
útfyllingar/útprentunar og á afgreiðslustöðum HS. Heimlagnarbeiðnin þarf að
undirskrifast af eiganda húsnæðis.
Viðskiptavinur þarf að tilgreina á beiðninni hvaða stærð af heimtaug sótt er um
og skrá rafverktaka, byggingarstjóra og tengilið ásamt fleiru.
Hvar skal heimtaugin fara inní húsnæði ? – Með umsókn þarf að fylgja málsett
afstöðumynd og málsett grunnmynd.
Sjá dæmi um málsetta
afstöðumynd hér.
Sjá dæmi um málsetta grunnmynd
hér.
Sjá frekari skilmála
hér.
Einnig þarf að koma fram hvort viðskiptavinur óski eftir því að HS leggi
ídráttarör út fyrir lóðarmörk gegn þóknunargjaldi.
Sjá hér dæmi um frágang á
ídráttarröri. Ef viðskiptavinur leggur sjálfur rörið þarf hann að skila inn
málsettri mynd sem sýnir staðsetningu á ídráttarröri við lóðamörk.
Sækja skal samtímis um allar veitutengingar sem HS Veitur hf sér um.
Rafmagndeild HS Veitna hf
Hannar tengingu húsnæðis og tengir strenginn í götukassa. Heimtaugarendinn er
dreginn inn í húsnæðið. Þegar taugin er tilbúin til áhleypingar lætur verkstjóri
verksins hjá HS Veitum hf tengilið verkkaupa vita.
Gjaldkeri HS Veitna hf
Gefur út reikning fyrir heimtauginni ef ekki hefur þegar verið greitt fyrir
heimtaugina og sendir til viðskiptavinarins.
Viðskiptavinur
Greiðir reikninginn fyrir heimtaugina áður en áhleyping á sér stað.
Þegar óskað er eftir áhleypingu þarf rafverktaki að skila inn þjónustubeiðni
S0.802. Þjónustubeiðnin þarf að undirskrifast af rafverktaka. Ef skipti hafa
orðið á rafverktaka frá heimlagnarbeiðninni þarf eigandi húsnæðis einnig að
undirrita þjónustubeiðnina. Hægt er að nálgast hana hér til
útprentunar og hér til
útfyllingar/útprentunar og á afgreiðslustöðum HS Veitna hf.
Ef um er að ræða fjölbýli þá þarf að skila inn skráningarblaði veitna í síðasta
lagi með áhleypingarbeiðni –
sjá skráningarblað hér.
Mæladeild HS Veitna hf
Þegar greiðsla hefur borist fyrir heimtaugina og áhleypingarbeiðni hefur verið
móttekin setja starfsmenn HS Veitna hf upp rafmagnsmælinn og spennusetja
veituna.